Þá erum við komin heim eftir tvær bestu vikur ársins og öll að detta í rútínu.
Höfðum það eiginlega bara of gott úti (ef það er hægt að segja að frí sé of gott).
Allir svolítið svekktir að þetta sé búið og því er ekkert annað í stöðunni en að byrja bara strax að telja niður í næstu ferð sem er áætluð eftir 2 ár. :)
Ótrúlega mikið að gera og ofan á allt annað þá byrjuðum við Siggi á nýju verkefni í gær (persónulegu ekki tengdu blogginu) svo við sjáum hvernig mér tekst að pússla þessu öllu saman.
Langaði líka að setja inn myndir en síminn er batteríslaus og ég á ekki hleðslutæki og myndavélasnúran er líka týnd.
Það mætti segja að það sé svolítill mánudagur í mér! :P
Ætla að henda inn myndum af forstofunni/ganginum fljótlega.
***
No comments:
Post a Comment