Ég var að koma af frábærum fyrirlestri hjá Ebbu í Melaskóla.
Þessi kona er náttúrulega bara æði og yndi og mig langaði eiginlega bara að taka hana heim með mér!
Það var met mæting og ég held að ALLIR hafi labbað þaðan út með sólskinsbros, hamingju í hjarta og ný markmið!
Ég veit ekki hvar ég á að byrja að ræða það sem ég lærði í kvöld það var svo mikið og merkilegt. Ég held að ég skrifi bara niður allt sem er í hausnum á mér, melti það og setji það svo hingað inn seinna.
Ég mæli svo sannarlega með því að fara á þennan fyrirlestur og helst með alla fjölskylduna. Ég sé allavega voða mikið eftir því að hafa ekki tekið Sigga minn með mér. Ég held að allir þurfi að vera meðvitaðir um þessa hluti.
Ebba heldur úti amk tvær heimasíður:
og
Endilega kíkið á þær og drekkið í ykkur áhugaverðar upplýsingar og fáið góðar hugmyndir.
Ég allavega lofa að þið munið heyra meira um hana hér á þessari síðu - hún var þvílík "inspiration" :)
***
1 comment:
Bíddu - og varst ekki búin að segja mér að þú værir á leiðinni...ég hefði alveg látið eins og ég ætti barn í Melaskóla! :)
(og það er glatað að koma með einhverjar svona afsakanir eins og að ég sé aldrei í vinnunni, eða í sætinu mínu eða eitthvað svoleiðis!)
...En já annars sammála - hún er dásamleg, og ég væri til í að gera allt eins og hún í matargerð!
-ES
Post a Comment