Sunday, January 5, 2014

Herbergi #8 - Skrifstofan

Það er langt síðan ég bloggaði síðast en við höfum ekki setið auðum höndum hér á bæ. Við eyddum sumrinu að mestu í garðinum og svo fór haustið í annað verkefni sem ég mun segja ykkur frá fljótlega.
 
En nú erum við komin aftur í gang og herbergi #8 er í vinnslu. Þetta er alveg nýtt herbergi (s.s. við ákváðum að bæta því við) og mun innihalda skrifstofu okkar hjóna.
 
 
Við ákváðum að stúka smá bút af sjónvarpsholinu/fjölskyldurýminu og gera skrifstofu úr því enda nóg pláss þar. En meira um það síðar.
 
***
 
Fyrir utan venjuleg húsbyggingarverkefni þá er ég búin að eyða síðustu vikum í að skipuleggja ALLT sem mér dettur í hug til að gera lífið sem einfaldast. Mig langar auðvitað til að deila því með ykkur (þ.e. ef einhver er ennþá að lesa þetta blogg!)
 
Ég er komin aftur!
 
***

8 comments:

Anonymous said...

Vei vei vei :)

Kv. EBH

Anonymous said...

Vúhú!
Hlakka til að fylgjast með framkvæmdum!
-Beta

Anonymous said...

Spennt að sjá framhaldið! :)

kv. Erna

Anonymous said...

mmm, skipulag! Ég vil fullt af svoleiðis póstum.

Gaman að þú sért komin aftur.

Harpa - ókunnug.

Kría said...

Ég fylgist spennt með!

Anonymous said...

Gaman gaman :D
-AF

Rósir og rjómi said...

Velkomin af stað aftur! Hlakka til að lesa fleiri pósta :-)

Anonymous said...

Gaman! Alltaf gaman að fá fleiri tips um skipulagningu. Gaman að fylgjast með húsinu ykkar :)