Fyrir langa löngu sagði ég ykkur að mig langaði í minnistöflu inná skrifstofu. Ég endaði á því að skella mér í IKEA (ótrúlegt en satt) og keypti VAGGIS minnistöflu á heilar 995 kr. (sjá HÉR).
Mér þótti taflan frekar óspennandi og því ákvað ég að mála hana. Ég átti Martha Stewart málningu í fallegum "metal" litum sem ég notaði til að gera "sikk-sakk" mynstur. Taflan kom skemmtilega út og nú hanga þar plön vikunnar/mánaðarins þannig að allir sjá! :)
***
No comments:
Post a Comment