Friday, August 15, 2014

Omaggio vasinn

Í ár eru 175 ár síðan fyrsti Kähler vasinn var framleiddur. Af því tilefni gaf fyrirtækið út sérstaka afmælisútgáfu af vinsæla Omaggio vasanum með handmáluðum koparröndum.
 
Vasinn var framleiddur í takmörkuðu upplagi og því voru langir biðlistar eftir honum hérlendis.
Ég skráði mig á biðlista út um allan bæ en náði að tryggja mér hann í Módern.
 
Nú er dýrgripurinn kominn heim og ég er ekkert smá hamingjusöm.
 
 
Ég mæli með því að þið kíkið í Módern ef þið hafið ekki farið þangað. Það er líka fullt af skrautmunum og fallegri gjafavöru þarna og á fínu verði.
 
***

No comments: