Monday, June 15, 2015

Frozen

Ég var svo heppin að fá að baka afmælisköku fyrir eina litla prinsessu - þessi afmælisprinsessa er svo mikill snillingur að saman fengum við góða hugmynd sem setti punktinn yfir i-ið á kökunni!

***

Kakan sjálf er bara Betty vinkona með heimagerðu smjörkremi. Kakan er bökuð í sérstöku "kjóla"formi sem hægt er að fá í öllum helstu bökunarverslunum. 

Kosturinn við að nota smjörkrem er að það tekur miklu minni tíma en t.d. sykurmasi. Við vorum í um 30 min að skreyta þessa köku en skikkjan er úr tilbúnum massa (sem sparar líka tíma).


 

Til að gera kökuna enn flottari fengum við vinkonur þá hugmynd að láta afmælisprinsessuna skreyta skikkjuna með matarlit. Mér fannst þetta gera kökuna svo miklu flottari og skottan var líka ánægð með sitt hlutverk! Ég mæli hiklaust með því að leyfa börnunum að taka þátt þegar kemur að bakstri. :)

Vandvirka vinkona mín að byrja að skreyta
 
Svo flott hjá henni en hún var að verða 4 ára



***

No comments: