Wednesday, July 25, 2012

6 hlutir af Pinterest: Myndir


Ég er mikið að spá í skrautmunum fyrir herbergið hans Bjarka og þessa dagana er ég aðallega að spá í myndum sem eiga að fara á vegginn við rúmið hans. Ég er komin með nokkrar hugmyndir og m.a. þessar sem ég fann á Pinterest (algjörlega ein af mínum uppáhalds heimasíðum!):


1.       Sónarmynd



Mér finnst þetta ótrúlega falleg hugmynd og eitthvað sem ég væri alveg til í að gera. Þetta kostar lítið sem ekkert og það er alltaf kostur.


2.       Stafir

  

Mín börn hafa bæði verið tæplega 2 ára þegar þau læra stafinn sinn og það er ótrúlega fyndið og gaman að sjá hversu stolt þau eru af stafnum sínum. Ég held að þau hefðu bæði haft gaman af því að hafa stafinn sinn upp á vegg þegar þau voru að læra hann og þ.a.l. finnst mér mjög sniðugt að hafa eina mynd með stafnum hans Bjarka. Stafir eru að mínu mati persónulegir og töff og greinilega hægt að gera þá úr öllu sem manni dettur í hug! J


3.       Nafnið



Það sama á í raun við um þessa hugmynd eins og myndina með stafnum. Mér finnst þetta hlílegt og persónulegt.


4.       Mamma málar



Hugmyndin byggist á því að skrifa með hvítum vaxlit á blað/striga og mála svo yfir með vatnslitum eða vatnsblandaðri málingu. Þetta er einfalt, ódýrt og maður getur sjálfur ráðið hvað er á myndinni. Með þessari aðferð verður málingin líka ótrúlega lífleg.


5.       Landakort



Ég er mjög hrifin af landakortum og mér finnst þessi hugmynd æðisleg. Hún passar ótrúlega vel inní barnaherbergi og svo er hún líka í pastellitum. Þetta er pottþétt dæmi um mynd sem ég er að leita að en gallinn er að mér finnst allir vera að skreyta með landakortum. 


6.       Stafrófið



Þessi mynd grípur augað. Þetta er líka dæmi um mynd sem passar ótrúlega vel inní barnaherbergi þar sem þetta er jú stafrófið. Kosturinn við hana er sá að maður getur leikið sér með litaþemað og það að hafa nafnið í miðjunni er punkturinn yfir i-ið. J  

Hvernig líst ykkur svo á?

ATH: myndirnar eru allar af Pinterest.com en ég man ekki nákvæmlega slóðina. Planið er að opna Pinterest vegg fyrir heimilisfrúnna og þá finn ég þessar myndir og set þær inn! :)

***

3 comments:

Kría said...

Þetta er skemmtilegt, hlakka til að sjá hvernig þú útfærir þetta:)

Alma said...

mjög góðar hugmyndir og flottar! Er einmitt dáldið í sömu pælingum (með veggskraut þeas).

Gudrun said...

Gaman aða fylgjast með :)