Monday, August 27, 2012

Fjölskyldan: Sumarbústaður


Við ætluðum uppí sumarbústað helgina 18-19. ágúst. Markmiðið var „almennt viðhald“ þ.e. að bera á pallinn, slá grasið og fleira. Ég ætlaði líka að skella mér í berjamó og týna öll þessi fallegu bláber sem eru í kringum bústaðinn.  


Ferðin gekk ekki betur en svo að við fórum heim samdægurs (um leið og búið var að bera á pallinn) og týndum eiginlega ekkert að bláberjum.


Ástæða: 2 mjög þreyttir og pirraðir bræður!

En við náðum samt nokkrum sætum sumarmyndum áður! ;)

Margrét og Bjarki að borða ber

Atli skons

Bjarki og Alexander frændi


Monsi litli í blómastuði


Allir í pottinum nema monsi litli (...og reyndar múttan)


Bolti, bolti, bolti, bolti.....




Svona var sumarnóttin í Skerjafirðinum okkar!

:)

***

1 comment:

Anna said...

Svo falleg þessi börn.