Við ætluðum uppí sumarbústað helgina 18-19. ágúst. Markmiðið
var „almennt viðhald“ þ.e. að bera á pallinn, slá grasið og fleira. Ég ætlaði
líka að skella mér í berjamó og týna öll þessi fallegu bláber sem eru í kringum
bústaðinn.
Ferðin gekk ekki betur en svo að við fórum heim samdægurs
(um leið og búið var að bera á pallinn) og týndum eiginlega ekkert að
bláberjum.
Ástæða: 2 mjög þreyttir og pirraðir bræður!
En við náðum samt nokkrum sætum sumarmyndum áður! ;)
Margrét og Bjarki að borða ber
Atli skons
Bjarki og Alexander frændi
Monsi litli í blómastuði
Allir í pottinum nema monsi litli (...og reyndar múttan)
Bolti, bolti, bolti, bolti.....
Svona var sumarnóttin í Skerjafirðinum okkar!
:)
***
1 comment:
Svo falleg þessi börn.
Post a Comment