Eitt af markmiðum ársins 2013 er að verða skipulagðari. Ég er mjög skipulögð að eðlisfari þó svo að árið 2012 hafi eiginlega verið í ruglinu. Árið byrjaði illa og við náðum okkur einhvernvegin aldrei á strik.
Markmið ársins 2013 snýst því í rauninni um það að koma okkur fjölskyldunni aftur "í gírinn".
Mín reynsla er sú að til að vera virkilega skipulagður þurfa allir meðlimir fjölskyldunnar að taka þátt og vilja vera "memm". Ég er svo heppinn að eiga mann sem þekkir mig vel og er til í allt svona og börnin okkar eru líka til í allt ef maður lætur það hljóma spennandi.
***
Fyrsta skipulagsverkefnið var að búa til dagbók fyrir árið 2013.
Ég var heillengi að gera bókina en hún var þess virði. Ég lét prenta hana og gorma fyrir mig í stærð A5 hjá Samskiptum og svo prentaði ég hana út hér heima og setti í möppu í stærð A4.
Ég ætla svo að sjá til hvort hentar mér betur enda er þetta í fyrsta skipti sem ég bý til mína eigin dagbók (þó svo að ég hafi alltaf notað svona bækur.)
Nánar um bókina:
Á fyrstu blaðsíðunni eru upplýsingar um mig ef bókin týnist:
Á næstu blaðsíðu fylli ég inn mikilvægar dagsetningar eins og afmæli, brúðkaupsafmæli og fasta viðburði (hrekkjavaka, Thanksgiving...):
Þar á eftir koma allir mánuðirnir:
Nú er komið að aðalatriðinu en það eru vikurnar.
Við Siggi reynum að setjast niður á sunnudagskvöldum og fara yfir vikuna sem er að líða og undirbúa þá næstu. Þetta tekur ekki langan tíma (ca. 40 min) og er án efa þess virði.
Þegar ég var að setja upp bókina hafði ég þessa litlu fundi okkar í huga. Hver opna er ein vika og núna höfum við þetta allt fyrir framan okkur og ættum þ.a.l. ekki að gleyma neinu.
1. Mánaðardagur
2. Þessi kassi er fyrir matarplön vikunnar.
3. Hér skrifa ég hvað á að vera í morgunmat (þetta á aðallega við um helgar hjá okkur)
4. Hér skrifa ég hvað á að vera í hádegismat (þetta á líka aðallega við um helgar)
5. Hér skrifa ég hvað er í kvöldmatinn. Ég er svo með annað blað (sem kemur inn fljótlega) þar sem við
plönum matarinnkaupin sérstaklega.
6. Við erum með fjárhagsáætlun pr. viku (það blað kemur líka inn seinna). Í þennan reit skrifum við hvort við erum undir áætlun, á áætlun eða komin yfir áætlunina.
7. Vika innan árs
8. Yfirlit yfir síðasta mánuð og næsta mánuð.
9. Hér skrifum við markmið vikunnar. Þetta tengist oftast húsinu t.d. að mála þvotta húsið, saga lista og fleira en svo erum við auðvitað líka með önnur markmið sem við setjum þarna líka.
10. Hér skrifum við svo annað sem við þurfum að muna.
Í lokin á bókinni eru svo 7 minnismiðar sem hægt er að fylla út allt annað sem manni dettur í hug. Þeir líta svona út:
Þá er ég búin að fara yfir alla bókina í bili.
Ef þið viljið ykkar eigin bók þá getið þið sótt hana með því að ýta á myndina hér að neðan.
Þið getið svo prentað hana út og byrjað að skipuleggja! :)
****
9 comments:
Þú ert algjör snillingur :o)
Kv. Hugborg
Osommm!!!!
ómægod þú ert kreisí á snildarlegan hátt! Hver býr til sína eigin dagbók?!?! Ætla svo feitt að nota hana!
Vá frábært :)
Kær kveðja
Guðrún Ásta
Góðan dag,
Ég rambaði inn á síðuna þínu með dagbókinni fyrir 2013 og verð að segja að þetta er alger snilld hjá þér. Ég var að spá í hvort ég mætti spyrja þig nokkura spurninga? Langar að gera svona bók sjálf en veit ekki hvernig, hvaða forrit notar þú til að búa til hinar ýmsu blaðsíður? Hvað kostar að láta prenta út svona bók? Vona að þetta sé í lagi og þú getir svarað mér.
Mbk,
Helga
Hæ Helga,
1. Ég er algjör Excel frík og geri ALLT í Excel.
2. Það kostaði alltof mikið að prenta þetta út (um 6000 kr). Ef ég væri að gera þetta aftur þá myndi ég bara prenta út blaðsíðurnar heima (litablek kostar ca 3-4000 og það dugar í meira en tvær svona bækur) og láta prenta forsíðuna og gorma inn hjá prentsmiðju (það kostaði um 1000 kr).
Bkv.,
Hildur
Takk æðislega fyrir svarið! :D
Ætla að sjá hvernig mér gegngur með þetta :D
Bkv,
Helga
Hildur ég er farin að bíða eftir blöðunum varðandi matarinnkaupin og fjárhagsáætlununa pr. viku ;)
Bestu kveðjur, Hugborg Erla
Datt inn á síðuna hjá þér fyrir tilviljun. Þegar ég sá svo hugmyndina um dagbókina þína þá tók hjartað mitt kipp, ég er með netta skipulags complexa, elska að skipuleggja og bý til hin ýmsu plön í samvinnu við vin minn Excel :)
Takk fyrir að deila þessari hugmynd :)
Post a Comment