Thursday, September 11, 2014

Herbergi #11 - Garðurinn fyrir

Síðustu tvö sumur höfum við verið að taka garðinn okkar í gegn hægt og rólega. Það er nóg eftir og við munum halda áfram a.m.k næstu tvö árin að gera hann flottann.
 
Mig langaði að sýna ykkur hvað við erum búin að gera.
Til að byrja með ætla ég að sýna ykkur hvernig garðurinn var fyrir.
 
1. Þegar við fluttum inn:
 
 Hér vorum við reyndar ekki flutt inn en hér sést ca. hvernig framgarðurinn var.
 
Maddý úti að leika eftir að við fluttum inn.
 
Við nældum okkur í nokkur bretti og bjuggum til þennan fína pall.
Skelltum upp skjólvegg frá RL lagernum og þá varð þetta ágætt - svona var sumarið 2009.
 
Hér sést aðeins betur framan á húsið.
 
2. Garðurinn gerður fínn - jarðvinnan:
 









 



 
Fullt hefur gerst síðan þá og m.a. þessi "gamla" færsla HÉR.
 
***
 

No comments: