Monday, September 1, 2014

Herbergi #14 - Fyrir (Atli 5 ára)

Í herbergi #14 býr 5 ára lítill gutti, hann Atli Snær.  Atli er ótrúlega rólegt og gott barn sem elskar bíla og að teikna. Oftast teiknar hann geimverur og ofurhetjur en það skemmtilega við hans myndir eru öll smáatriðin og að þegar hann er búinn að lita þá sést varla í hvítt.
 
Þegar við spurðum Atla hvernig herbergið hans ætti að vera þá var hann fljótur að svara - Spiderman!
 
***
 
Hér ættu að koma myndir af herberginu hans Atla frá því að við fluttum inn en ég komst að því þegar ég skrifaði þessa færslu að herbergið hans Atla er ekki til á myndum!
 
Ég hef ekki hugmynd af hverju en það er eins og ég hafi bara gengið framhjá því í öll þau skipti sem ég hef tekið "stöðumyndir" af húsinu.  
 
Hér að neðan eru þó myndir sem ég tók "í ferlinu" og þær sýna ca. hvernig það var. :)
 
Fyrir:
 


 
 
 

No comments: