Ég er alltaf á leiðinni að setja inn matarplönin okkar og sýna ykkur hvernig við skipulegjum kvöldmatinn en síðustu mánuði höfum við verið að spara svo ég hef sleppt ykkur við krísu-matarplönin - en það kemur að því. :)
***
Það er einn réttur sem hefur fylgt okkur Sigga síðan við hófum sambúð. Rétturinn flokkast sem "pastaréttur" og ég gerði hann einhverntíman þegar réttur dagsins var "TTÍÍ" (tekið til í ísskápnum). Við vorum svona líka ánægð með þetta að við höfum borðað hann að jafnaði aðra hverja viku síðan þá.
Þetta er einfaldur réttur, það er hægt að búa til mikið í einu og borða nokkra daga í röð og hann kostar undir 1500 kr (sem telst gott í dag). Þetta líka einn af ca 8 réttum sem Siggi kann að elda svo þegar þetta er í matinn þá eldar hann oftast og þess vegna kalla krakkarnir þetta pabba pasta.
***
Pabba pasta
Hráefni:
1 pakki heilhveti pasta (eða það sem ykkur finnst gott)
1 dolla rjómaostur (við notum þennan íslenska bláa)
1 beikon pakki
1-2 paprikur
1/4 L G rjómi (ef það er ekki til þá matreiðslurjómi eins og á myndinni)
1 stk grænmetisteningur (við notum Knorr)
Aðferð:
1. Vatn, salt og olía sett í pott.
2. Pastað er sett út í þegar vatnið er soðið og eldað í þann tíma sem stendur á pakkanum (ca. 10-12 min)
3. Skera beikon og papriku smátt og steikja á pönnu. Við steikjum alltaf beikonið fyrst því við viljum hafa það stökkt.
3. Síðan er paprikan sett útí.
3. Þegar þetta er orðið hrikalega girnilegt þá hellum við G rjómanum og rjómaostinum út í og hrærum með sleif þangað til að rjómaosturinn er alveg bráðnaður. Þá leyfum við þessu að malla aðeins lengur.
4. Pastað sigtað frá vatninu og sett í eldfastmót.
5. Sósunni hellt yfir og allt hrært saman.
Og þá er þetta tilbúið - tekur ca 20 min allt í allt!
Ég set ekki steinselju yfir eða neitt álíka til að gera þetta fínt og flott. Ástæðan er einföld - ég hreinlega tími því ekki nema þegar það eru gestir í heimsókn. Þess vegna ætla ég bara að sýna ykkur þetta eins og ég geri þetta - beint af kúnni.
Réttinn ber ég oftast fram með hvítlauksbrauði og/eða grænmeti og við hreinlega elskum þetta! :)
***
3 comments:
Takk fyrir að deila þessu, mjög girnilegt og ég ætla að prófa þetta einhverntímann ;)
Af hverju þarf það að vera eldfastmót??
Þetta er bara eins og við gerum þetta. Öllum er auvitað frjálst að gera það sem þeir vilja t.d. setja þetta í skál, nota sveppi, nota mexicoost o.s.frv. :)
Bkv.,
Hildur
Post a Comment